Prófíll

  • Nafn: Ása Dóra Finnbogadóttir
  • Atvinna: háskólastúdína...
  • Hjúskaparstađa: einstök
  • Um mig: Ég heiti Ása Dóra, er orđin 37 ára, er barnlaus og er loksins búin ađ finna hvađ ég ćtla ađ verđa ţegar ég verđ stór ;o)
  • Annađ: ......ég á mér draum !!!!!!!!!!!

Auglýsing

Noregsferđ - heimsókn til Siggu Júllu vinkonu !!!

Nćsta markmiđ: 5 kg farin !!!

Lokamarkmiđ: 40 kg farin !!!

Innskráningar kubbur

Myndir af mér á ýmsum tímum......

Könnun

Hvort er skemmtilegra ađ vera jákvćđur - eđa JÁKVĆĐUR????

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.

Leit

Gamla bloggiđ mitt og ýmislegt fleira

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Komin heim í heiđardalinn !!

01. júní 2009 klukkan 22:11
Jæja - þá er maður kominn heim eftir rosalega góðan tíma fyrir norðan - varði tíma með múttu og Júlla bróður, hljóp þrisvar á tímabilinu - m.a. á æfingu með hlaupahópnum á Bjargi og 3 km í Mývatnsmaraþoninu, sem var alveg meiriháttar !!!

Svo var auðvitað Júlíus "litli" bróðir fermdur - hrikalega flottur strákurinn, glerfínn í jakkafötum og alveg meiriháttar veisla í Skagafirðinum - mikið gaman mikið stuð....

en jæja besta að koma sér í bólið svo ég verði með einhverja orku í garðvinnuna á morgun (er að byrja í vinnunni - verð í garðyrkjunni hérna á Hvanneyri í júní).......

knús og kossar Kiss 
Ása Dóra Finnbogadóttir
2 athugasemdir

hahahah

20. maí 2009 klukkan 18:24
hahahah.....já Erla ég er hérna ennþá - reyndar komin norður í land - búin í skólanum og verð hérna framyfir mánaðarmót - lofa að blogga meira mjöööög fljótlega - nenni því ekki alveg í augnablikinu - en varð að svara afríkukallinu.....

.....by the way þá er ég ekkert búin að plana júní og júlí - nema þá vinnulega séð - þannig að við getum talað okkur saman með hitting - og júts við leggjumst sko víst í áfengisbleyti Í POTTINUM !!!

heyrumstumst mjög fljótlega pæja (hugsa það séu ekkert rosalega mikið fleiri en þú sem lest þetta ) 
Ása Dóra Finnbogadóttir
4 athugasemdir

....Gump......Forest Gump.......

30. apríl 2009 klukkan 21:16
.......hahahah mér varð sko hugsað til hans þegar ég hljóp í dag - einsog vindurinn allan stóra hringinn.....

....jahhh aldrei þessu vant hljóp ég nú hraðar en vindurinn á Hvanneyri - það er svo æðislegt hvað er alltaf mikið rok hérna - því við kunnum sko miklu betur að meta lognið þegar það loksins kemur!!!  Hraðinn á mér var reyndar enginn ógnarkeyrsla......tók mér 40 mínútur í þetta.......kemst þó hægt fari Cool

já já - annars er bara allt gott að frétta - síðasti spretturinn í skólanum alltaf að styttast í annan endann........HLAKKA SVO TIL þegar ég get farið að einbeita mér að hlaupunum - og já ég er alveg að komast í gírinn með að huga að matarmálunum líka - en ég tók mjög meðvitaða ákvörðun að láta þau mál eiga sig í bili - á meðan ég kæmi mér af stað í hlaupunum.......en nú verða komnar 4 vikur á mánudaginn frá því ég hljóp af stað.......og komnir heilir 58,8 km í heildina - bara komin hálfa leið til Reykjavíkur og rúmlega það !!!

Ég er búin að prófa ansi mikið og hugsa og pæla í matarmálum - og held að hugarfarið sé númer eitt, tvö og þrjú í þessum málum......ég er sumsé algjörlega hætt í átaki, megrun eða aðhaldi.....og ætla að njóta þess að borða hollan og góðan mat sem gerir mér gott.......á kostnað hins......taka einn dag í einu, hrósa mér fyrir góðu dagana - en passa samt að rífa mig ekki í spað fyrir þá sem verr takast !!!!  Ég held ég sé búin að læra að það er ekki allt ónýtt þó ég "renni út af sporinu" - ég tek bara upp þráðinn strax aftur (ég var sko vön að hugsa að ég gæti þá bara borðað einsog ég gat af því þetta var hvort eð er ónýtt !!).......

jæja nóg í bili......verkefnin bíða (frábært hvað maður fyllist orku við hlaupin - ég var alveg að sofna áður en ég fór út - en nú nenni ég alveg út í skóla að læra Kiss)

knús og kveðjur......Ása Gump.....

p.s. hér með óska ég eftir hlaupafélaga til að hlaupa með amk einusinni í viku hérna á Hvanneyri - má alveg vera á 0-punkti - upp í að geta hlaupið "stóra hringinn" mjög rólega Wink - the more - the merrier - endilega hafðu samband !!!!
Ása Dóra Finnbogadóttir
7 athugasemdir

voriđ komiđ.......

26. apríl 2009 klukkan 17:30
...loksins er hægt að segja að vorið sé komið hérna á eyrinni - hrikalega gott að fara út að hlaupa í blíðunni......spretti aðeins úr spori í dag og hljóp sömu vegalengd (2,8 km eða út að gatnamótum einsog við köllum það hérna).....á styttri tíma......23 mín.....stefni á að ná þessu á 20 mín í þessari viku...

.....nú verð ég líklega að fara að skoða námsbækurnar - þegar flestar afsakanir eru búnar - allavega er manni varla stætt á að gera vorhreingerningu á íbúð og bíl þegar svona mikið af skólaverkefnum bíða manns........22 dagar eftir af skólanum....þetta mjakast allt !!!

knús og kremjur.....einsog venjulega Cool

 
Ása Dóra Finnbogadóttir
2 athugasemdir

...betri tíđ međ blóm í haga.....

25. apríl 2009 klukkan 21:00
.......jahhh kannski ekki blóm og sólin eitthvað upptekin (er hún kannski fyrir sunnan??).....en ég dreif mig út að hlaupa - hljóp út í buskann í 20 mín og gekk til baka - tvöföld ánægja.....heheh....var reyndar á síðustu bensíndropunum á hlaupunum en líður alveg gazalega vel svona eftirá......kíkið inn á hlaup.com.......en þar skrái ég allt sem ég geri í spriklinu...

....kláraði líka eitt af verkefnunum í dag......þarf að klára annað á morgun, og vinna í öðru......allt að gerast......held það séu um 23 dagar eftir af skólanum - vííííí

knús og kremjur......

 
Ása Dóra Finnbogadóttir
Engin athugasemd

.....ekki sjens......

25. apríl 2009 klukkan 01:16
......að ég kæmi mér út að hlaupa í dag - var ískalt, með hausverk og verkjaði í allan kroppinn......skil ekki hvað var í gangi.....fór í örgöngutúr með litla bróður....varð bara ennþá kaldara.........en hey - það kemur nýr dagur á morgun með góðum hlaupatúr og dugnaði í verkefnavinnu.....

.....góða nótt - og munið að nota atkvæðið ykkar vel á morgun - áfram X O !!!!

 
Ása Dóra Finnbogadóttir
Engin athugasemd

GLEĐILEGT SUMAR !!!

23. apríl 2009 klukkan 14:14
já gleðilegt sumar öll sömul (þið sem álpist inn á þessa síðu)....mikið var gleðilegt að kíkja út um rimlagardínurnar í morgun og sjá að sólin var að glenna sig loksins.......

.....ég hinsvegar var eitthvað mikið þreytt í morgun, og kannski á þar einhvern þátt að ég er að kafna í verkefnum í skólanum þessa dagana og verkkvíðinn minn kemur í veg fyrir að ég byrji á nokkrum sköpuðum hlut í dag.......einsog ég er nú búin að vera merkilega dugleg undanfarið.....en ég semsagt hafði mig ekki upp úr bólinu fyrr en seint og um síðir og auðvitað var farið að rigna og hitastigið bara um 4 - 5 gráður.......

.....einsog þið sáuð, sem fylgist með inni á www.hlaup.com, þá tók ég mér frí á þriðjudaginn, og í gær ákvað ég að láta "stóra hrings" gönguna sem ég fór kl. hálf sjö um morguninn duga (gekk miklu hraðar en ég er vön, til að fylgja stelpunum sem voru með mér - frábært að fá hvatningu til að hraða á sér) - þó mig langaði mikið út í smá göngu í gærkvöldi - það var svo yndislegt veður eftir að lægði.....en ég var eitthvað svo búin á því.....og vil ekki fara alltof geyst af stað - hlusta pínu á kroppinn - þó ég leyfi honum samt ekki að komast upp með eitthvað væl Wink

.....núna er ég að herða mig upp í að klæða mig vel og fara út að hlaupa - ætla út að vegamótum og til baka (2,8 km) brrrr agalegur hrollur í mér eitthvað - en verður svo gaman og gott þegar ég er búin.....

....sjáumst næst.......knús og kremjur - og látið það ekkert á ykkur fá þó sumarið sé ekki komið suður ennþá (auðvitað er það komið fyrir lööööngu fyrir norðan - ekki satt???)..... 

p.s. ég bætti inn þyngdinni minni síðan á þriðjudag - held ég miði bara við hana, þar sem ég hef haldið henni nokkuð síðustu daga/vikur.....sem þýðir að þann 18.maí (á afmælisdaginn hennar Evu) verð ég amk komin niður í 98,4 kg.

p.p.s. ahhhh þetta var erfitt - en SVOOO GOTT -
kláraði hlaupin í dag ;) 
Ása Dóra Finnbogadóttir
Engin athugasemd

merkilegt nokk!!!

17. apríl 2009 klukkan 23:36
Ahhh - ég fann eitthvað svo mikinn kraft í mér á síðustu metrunum í skokkinu í dag - spretti úr spori og fannst ég vera að springa úr orku!!!

Annars finnst mér alveg ótrúlegt hvað ég finn mikinn mun á kroppnum strax....finnst ég öll stinnast og styrkjast - og réttist úr mér allri - bæði líkamlega og andlega - því merkilegt nokk - þá hefur sjálfstraustið líka aukist og ég er farin að halda út allan daginn ólíkt því sem er búið að vera í ALLAN vetur!!!  

Ég get allavega ekki lengur nota þá afsökun að ég hafi ekki orku í að hreyfa mig.......þegar ég finn hvað ég FÆ mikla orku af því að hreyfa mig -

- merkilegt nokk !!!

eigið öll yndislega helgi

knús og kossar........

 
Ása Dóra Finnbogadóttir
5 athugasemdir

Vori vor.......

17. apríl 2009 klukkan 11:25
Jæja - loksins er farið að hlýna hérna á eyrinni, ég gekk stóra hringinn í gær og ætla svo út að hlaupa í dag......

....verð svo í borginni meirihlutann af helginni - að vinna verkefni.....

læt heyra í mér fljótlega ;o) 

p.s. endilega kíkið inn á síðu Útivistarklúbbsins - tengill efst á síðunni.... 
Ása Dóra Finnbogadóttir
2 athugasemdir

Gleđilega páska!!

12. apríl 2009 klukkan 20:25
....ég vona þið séuð búin að hafa það álíka gott og ég um páskana.....var í bústað í tvær nætur, og váááá hvað það var hrikalega næs....mikið gott og mikið gaman !!!

ég er búin að vera dugleg að fara út að skokka - meira að segja í bústaðnum (brr það er sko búið að vera kalt hérna í Borgarfirðinum)....tók reyndar frídaginn í gær og var að spá í að fara bara út og ganga í dag, þar sem kvefið tók sig upp aftur,hálsbólga og skemmtilegur hósti, en eftir nokkrar hóstarokur og skoðun á hitamælinum (0°C) held ég að ég játi mig sigraða.....og haldi mig innivið í dag - reyni að jafna mig og taka svo góða göngu á morgun - og komi svo sterk inn í næstu viku!!!

knús og kossar....



 
Ása Dóra Finnbogadóttir
2 athugasemdir