Prófíll

  • Nafn: Ása Dóra Finnbogadóttir
  • Atvinna: háskólastúdína...
  • Hjúskaparstaða: einstök
  • Um mig: Ég heiti Ása Dóra, er orðin 37 ára, er barnlaus og er loksins búin að finna hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór ;o)
  • Annað: ......ég á mér draum !!!!!!!!!!!

Auglýsing

Noregsferð - heimsókn til Siggu Júllu vinkonu !!!

Næsta markmið: 5 kg farin !!!

Lokamarkmið: 40 kg farin !!!

Innskráningar kubbur

Myndir af mér á ýmsum tímum......

Könnun

Hvort er skemmtilegra að vera jákvæður - eða JÁKVÆÐUR????

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.

Leit

Gamla bloggið mitt og ýmislegt fleira

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

jihííí......

19. júní 2009 klukkan 19:33

hvað er í gangi með formattið hérna inni - ég er búin að berjast þvílíkt við töfluna þar sem ég set inn þyngdina mína - hún vill baaara ekki hlýða mér!!!

en hvað um það - ég átti alveg frábæran afmælisdag í gær.......hélt uppá hann m.a. með því að bjóða vinnuskólakrökkunum á Hvanneyri í pylsupartý (ég er sko að vinna þar í júní - fannst þetta upplagt Wink ) og eftir að fá Sigguna mína í heimsókn - sem færði mér líka þessar fínu og flottu gerberur......þá einhenti ég mér í að græja mig suður, en þar beið mín "afmælisveisla" heheh - nei djók - tengdafólk systur minnar var með veislu og mér var boðið að kíkja með henni.......en á eftir kíktum við systurnar á kaffihús.....og auðvitað fékk ég blóm og gjöf frá henni........

.......ég endaði svo daginn með því að fá mér einn öl í rólegheitum og svara hundraðogeitthvað afmæliskveðjum sem mér bárust á fjésinu.......Cool 

í dag keypti ég svo afmælisgjöf frá mér til mín.......loksins búin að fjárfesta í Garmin hlaupaúri - þurfti að "hlaupa" út um allan bæ til að finna eintak af Forerunner 305 - en tókst það að lokum þrátt fyrir frekar mikil óliðlegheit frá afgreiðslufólki.......

.....núna sit ég úti í sveit hjá vinkonu minni - sem bað mig að kíkja á garðinn hjá sér og sjá hvort mér dytti eitthvað skemmtilegt í hug Wink 

ég var líka að smella inn nýjustu tölum frá frú Viktoríu - gleðilegar að þessu sinni - svona fyrir utan vesenið með að fá einhvern lit og aðra stærð á letrið!!!

knús og kremjur og takk enn og aftur fyrir ammæliskveðjurnar - þið sem þetta lesið..... 

Ása Dóra Finnbogadóttir

Skrifa athugasemd