05. maí 2010 klukkan 17:36
......og þá meina ég talan á vigtinni.......enda búið að taka á því undanfarið - en betur má ef duga skal.....ég þarf að vera komin í gott form fyrir sumartörnina fyrir vestan - það verður þvílíkt stapp á manni og þeytingur :D
kíkið á fjésið hjá mér - þar er ég miklu virkari að smella inn því sem ég er að sýsla við ;)
Ása Dóra Finnbogadóttir
13. apríl 2010 klukkan 13:27
.......ég er amk að léttast núna - allt á réttri leið :D
Brjálað að gera.....ný vinna - einkaþjálfun og lokaspretturinn í skólanum!!!
Taumlaus gleði !!!
Ása Dóra Finnbogadóttir
20. mars 2010 klukkan 19:02
17. dagar til að ná sér niður í fimm kg. markið - hef lést samtals (frá því ég byrjaði í fyrra sko!!) - um 1,2 kg.....sem þýðir að ég hef þessa 17 daga til að léttast um 3,8 kíló.......ekkert mál fyrir Jón Pál sko..........hmmmmm.........vantar ekki pííííínu einbeitingu í málið???
Annars er ég agalega glöð bara - allt að gerast og brjálað fjör
.....meira um það síðar!!!
Ása Dóra Finnbogadóttir
11. mars 2010 klukkan 00:11
stundum hugsa ég of mikið - en það er ekki alveg nóg!!!
EKKI HUGSA - GERA !!!!
Ása Dóra Finnbogadóttir
10. mars 2010 klukkan 10:26
Búin að uppfæra dagsetningar í "ný markmið" - og teljarana "næsta markmið" og "lokamarkmið"
Næsta skref er að skipuleggja matarræðið og hreyfingarprógram - það kemur mjööög fljótlega - merkilegt hvað maður er duglegur að finna sér eitthvað annað að gera en að læra - hmmm 
till then.......
Ása Dóra Finnbogadóttir
09. mars 2010 klukkan 22:38
Léttist um 1 kg. frá 20. feb - sem er baaara gaman 
......er sumsé farin að vigta mig einusinni í viku aftur.......
Er með hausinn fullan af plönum sem ég þarf að setja á blað.......og fara svo eftir þeim !!!
Matur - hreyfing - námið - vinna eftir námið.....og svo videre.....
góða nóttina samt í bili heheheh.....
Ása Dóra Finnbogadóttir
02. mars 2010 klukkan 16:02
Hvað haldiði.......???
Fór kjellingin ekki bara út að hlaupa í dag!!! Auðvitað er fundið upp á öllu öðru en að lesa undir próf heheheh.....
Ég dreif mig í gallan þegar ég kom frá því að tjasla saman bílnum fyrir sunnan.......sólin var þar glampandi og fyllti mig orku og gleði, og þó það væri ekki alveg eins bjart yfir eyrinni dreif ég mig samt og sólin kíkti aðeins yfir Skarðsheiðina 
semsagt - eintóm gleði - og já já ég er farin að lesa undir próf.....!!!!
Ása Dóra Finnbogadóttir
27. febrúar 2010 klukkan 01:36
Hvađ er máliđ međ ţetta blogg?? Mér tekst aldrei ađ tjónka viđ ţetta - en allavega ţá er fćrsla komin inn - sjá "nánar"...
Nánar
Ása Dóra Finnbogadóttir
17. júlí 2009 klukkan 09:31
.....og ég hangi enn í þriggja stafa tölunni - en hún er sú síðasta!!
- 100,0 slétt.......auðvitað rokka ég alltaf upp og niður á þessari viku sem líður venjulega á milli vigtanna hjá mér sjálfri - en þetta var pínu svekkjandi þar sem ég náði 99,4 fyrir tíu dögum - og hefði getað haldið því - eða lést ennþá meira.......
.......ég er samt ekki að velta mér uppúr þessu endalaust - elska lífið og nýt þess að vera til einsog ég er - búin að losa mig við 2,8 kg síðan í síðustu vigtun (hjá Sigurvegurunum) og 5 kg í heildina síðan við byrjuðum að senda inn tölur - og er bara ánægð með mig 
....það má heldur ekki gleyma því að njóta lífsins og láta ekki allt snúast um hreyfingu og létting - ég fæ t.d. frábæra gesti um helgina - elsku bróðir minn og frændi með fjölskyldu ætla að kíkja og við gerum örugglega eitthvað skemmtilegt - ég ætla að drífa mig á hestbak mjög fljótlega ...........og svo þegar helginni sleppir kemur hversdagsleikinn aftur inn með hreyfingu og hollu matarræði - en ég ætla þá að taka til við að æfa eftir hlaupaplaninu hennar Bibbu - byrja á 4.viku
- hvernig gæti lífið verið betra???!!!
Ása Dóra Finnbogadóttir
07. júlí 2009 klukkan 09:43
....búin að ná markmiðinu mínu fyrir þennan mánuðinn - tíu dagar fram að vigtun - verður spennandi að sjá hvað ég fer í mikinn mínus (þ.e. hvað ég léttist umfram markmiðið
) - og auðvitað þarf að viðhalda árangrinum - ekki detta í eitthvað kæruleysi heheh...
annars bara allt gott af mér að frétta - fór í Akraneshlaupið á laugardagsmorgun og var með snúllurnar frænkur mínar fram á sunnudag, gekk upp að Steini á Esjunni í gær með Sigurvegurunum - ætla að fá einhvern til að skutla mér upp í Skorradal hlaupa 10 km í dag og á hestbak á morgun - æfing fyrir Landsmótshlaup - og fyrir kvennareiðina í næstu viku - á maður ekki bara að taka þátt í lífinu!!!!
eigið öll yndislega daga í sumar......knús og kossar
Ása Dóra Finnbogadóttir